MYNDIR
Gjörðu svo vel Martha frænka
Þar sem næstum allir eru svo mikið inn á þessari blessaðri facebook (ekki ég samt) og ég löt að fara í tölvuna og setja hérna inn var ég bara að spá að hætta þessu rugli híhí EN auðvita vill maður sýna gullmolann sinn og segja frá
Þar sem ég borga ekki fyrir myndapláss get ég, því miður, sett inn fáar myndir... einu sinni gat maður sett inn 50myndir frítt en það er greinilega e-r kreppa hjá bloggar.is híhí... en ég verð vonandi dugleg að skella inn í staðin eða bara færa mig um set hmmmm
Hilma Dís er alltaf jafn dugleg og mikill prakkari. Hún er hjá ömmu sinni á daginn og leikur við strákana og ömmuna - held að það sé alveg óhætt að segja að hún Elski það
Veit nákvæmlega hvað er að fara að gerast á morgnanna þegar við töltum útí bíl hehe Hún er farin að labba mikið sjálf en samt ekki alveg farin að labba - þið skiljið hvað ég meina hehe ... átti erfitt með þetta fyrst þar sem hún var svo spennt en núna er hún farin að róast og "trappa" sig niður áður en hún leggur af stað. Hún er orðin mjög dugleg að borða sjálf en auðvita misdugleg við það, segir orð og orð (Amma vinsælast, Jóna, Afi, Mamma, Pabbi, drekka, krakkar, María, dudda, maa (öll dýr) og fl.) og svo spjallar hún á sínu máli auðvita og bendir. Farin að fara upp og niður stigann hjá dag(m)ömmunni
- mikið sport og var fljót að læra hvernig maður fer upp. Búin að næla sér í eyrnabólgu og handa-, fóta- og munnsjúkdóminn og össsssssss vonandi fáið þið hann ekki - allavega ekki eins og hægt er að fá hann sem verstan!!! En það fékk HDH, bólur í munninn og líklega í kokið, þar af leiðandi erfitt að borða og ekki hægt að borða hvað sem er og bara mikil óþægindi! En núna er stelpan að hressast, farin að borða meira og sofa betur
Prakkarast og galsast
Hilmu Dís finnst mjög gaman að syngja. Vinsælustu lögin núna eru Höfuð, herðar, hné og tær (þá skellir daman höndunum á höfuð sitt og segir "uuuu" og mamma á að syngja og mín færir hendur á tær og svo eyru og munn, ekkert endilega í takt samt hehe) og Stóra brúin fer upp og niður (þá fer hún út með hendur og segir "u-u-u" og mamman á að syngja - þó fyrsta erindi sé ekki búið klappar hún og fer í næsta sko með handahreyfingum en þá lætur hún puttana "labba" á handleggnum - fólkið labbar yfir brúnna).
hehe Já vonandi skiljið þið þetta, þetta er allavega skondið í sjón hehe
jæja þetta er fínt í bili...
Hafið það gott
Syngjandi mæðgurnar... sem telja niður dagana þangað til sjóarinn síkáti kemur í land!!!